Valdís

Velkomin(n) á heimasíðuna mína

17.03.2007 16:10:14 / Valdís

HÆTT!!

jæja gott fólk

Ég ætla að hætta með þessa síðu núna, ég bara nenni þessu ekki!!!!

         bless í bili Valdís:|:|


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 13:41:55 / Valdís

Jólin koma!! og margt búið að vera um hjá mér!!

Jæja það er kannski kominn tími til að blogga smá.

 

 



          Eins og þið vitið var ég í Vestmannaeyjum. Það var mjög gaman þar, unnum samt engann leik, það skiptir samt ekki öllu máli. En það kom upp smá leiðindi í ferðinni....já það var stolið einum skó frá ansi mörgum, meðal annars mér. En skórinn fannst upp á þaki....sem betur fer .

 

 



En margt hefur gerst síðan þá við fórum í október og nú er kominn desember. Við erum búnar að fara á annað mót og þá gekk betur og enginn týndi skónum sínum:D.

 

 



Það má til gamans geta að bróðir minn hann Viktor er í Filipseyjum og er búinn að vera þar í svolítið langan tíma. En hann er allveg að fara að koma heim eða réttara sagt 22.desember:D.

En ég fór á mánudaginn sl. fór ég hlaupandi heim úr skólanum sem var eins gott að ég gerði því fljótlega gubbaði ég:whut: og ég fór ekki í skólann á þriðjudaginn heldur

En nóg um það, nú fara jólin einnig að bresta á og ég er búin að vera að þrífa og aðeins farin að setja upp jólaskrautið. Í gær vorum við að baka piparkökur, Valur kom hingað líka, við gerum pipó alltaf saman:hehe:.

          Svo eru það jólaprófin, þau byrjuðu á föstudaginn:S. En ég þarf ekki að taka þau því að ég er með hærra en 8 í skóla- og mætingareinkun....þá má maður sleppa jólaprófunum, þannig að núna er ég eiginlega bara í fríi því þetta eru prófdagar og ég þarf ekki að fara í skólann:D:D

 

 



                             Ég held bara að þetta sé komið gott hjá mér í bili

                             Ef þið viljið vita eitthvað meira þá endilega commentið:D:D

 

 



          Valdís:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 11:03:27 / Valdís

Eeeejaaar á eeeeftiiiiiiir!!

Já þá er komið að því að ég er að fara til Vestmannaeyja í fyrsta sinn!!:haha:

En ég fer með seinni ferðinni þannig að ég verð komin kl. hálf ellefu eða eikka:(

Ég er sem sagt að fara með stelpunum í boltanum:haha: við keppum fimm leiki en ég veit ekki allveg á móti hverjum. En við förum með Gubbólfi (Herjólfi), vonandi verður gg stuð.

Núna er ég bara í skólanum að láta mér leiðast, Íris er í matreiðslu en ég er samt með henni Sveindísi:haha:

Valdís:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.10.2006 10:56:19 / Valdís

kjellan á leið í bústað!

Það er búið að vera svolítið mikið að gera hjá mér í skólanum, þannig að ég hef ekki haft tíma til að blogga. En fyrir þá sem ekki tóku eftir því þá er ég komin með nýtt útlit8)

En allavega er ég að fara í sumarbústað á eftir, bústaðurinn er við Úlfljótsvat og er eitt besta sumarbústaðaland sem ég hef komið á alla ævi, við ætlum að vera fram á þriðjudag, þannig að þið fáðið ekkert blogg þangað til (hef nú samt ekki verið nógu dugleg að blogga).

Næstu helgi fer ég svo til Vestmannaeyja með boltanum8):haha: hlakka geðveikt til.

En núna er ég bara í skólanum í tölvutíma, ekkert voða gaman en ég harka þetta af mér.

Nenni ekki að skrifa meira:$

Valdís:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.10.2006 18:22:11 / Valdís

Svolítið langt síðan síðast:S

ÚFF það er orðið svolítið langt síðan ég skrifaði síðast:$

 

 



En það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér. Ég fór í Vatnaskóg með skólanum í skóla- og fermingarferð:haha: Það var gg stuð:D Við vorum í tvær nætur8)

En ég var að keppa um daginn sem A-lið;) en það gekk ekkert alltof vel, svo eftir mótið ákvað þjálfarinn minn að hætta:S en við fengum tvær fínar stelpur í staðinn, þær heita Arna og Berta. Mér var líka boðið að fara á 4.flokks æfingu8) það er fínt.

En það gengur allt vel í skólanum, það eru búin nokkur próf og mér hefur bara gengið vel í þeim. Það voru foreldraviðtöl í dag þannig að ég var í fríi:haha:

 

 



En nenni ekki að skrifa meira

Valdís:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.08.2006 21:25:10 / Valdís

FOOTLOOSE:D:D

 

 



FOOTLOOSE

 

 



Það var bara gaman á FOOTLOOSE, gg mikið stuð8):D:haha:

 

 



En ég var bara að læra áðan:( en í dag fór ég í bíó á garfield 2:D ágæt mynd, fór með Val:haha:

Nenni ekki að skrifa meira:!:

 

 



Bless í bili:D

                                                           

VALDÍS:haha:

         


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.08.2006 10:49:00 / Valdís

í skólanum

Hææ 

Er bara í skólanum núna, allt byrjað á fullu meira að segja heimalærdómurinn:( en allavega bara í skólanum.

En ég er að fara á Foodlose á eftir með Val8)

                               Valdís:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.08.2006 13:22:09 / Valdís

KOMINN TÍMI TIL AÐ BLOGGA!!

 Jæja, það er svolítið langt síðan ég bloggaði:$ en enginn skaði skeður. Alla vega er bara búið að vera mikið að gera hjá mér. Ég er búin að fara í tvær útilegur síðan ég kom heim frá Þýskalandi. Í fyrri var ferðinni heitið til Lauga í Sælingsdal8), en í seinni sem var um verslunarmannahelgina var haldið til Akureyrar8).

 

Þar varð ég 13 ára:haha:8) , það var bara gaman. Mamma bakaði pönnukökur (í útilegunni) en við keyptum köku í 10 11. Hún var ágæt.

Þegar við komum heim gerðum við fínt hérna heima og haldin var veisla daginn eftir:D

Það var gg gaman.

 

En nú fer skólinn að byrja:o. Það er bara fínt, en ég er að fara í áttunda bekk:haha:;). Ég trúi þessu varla, en ég er búin að kaupa allt skóladótið:D

 

MENNINGARNÓTT!!

Það var gg gaman. Ég, mamma og pabbi fórum í bæinn fyrir mat því pabbi þurfti að vinna eftir mat. En ég og mamma fórum einar eftir mat:D. Það var bara mikið af fólki8|

Við vorum bara að labba um, mamma hitti einhvern úr vinnunni og við vorum bara með þeim að horfa á flugeldasýninguna, fórum svo bara heim eftir það.:P

 

 

Búin að skrifa nóg í bili;)

Valdís:haha:



 



 



 



 



 


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 19:39:08 / Valdís

Komin heim:D

Jæja þá er ég komin heim frá Þýskalandi8). Það var bara gaman eins og ég er búin að segja í blogginu hér á undan:haha:. Við fórum í dýragarðinn. Það var mjög gaman þar, aparinir voru skemmtilegastir;), sérstaklega litlu aparin þeir voru svo krúttlegir. En annars fórum við bara á ströndna það sem eftir var af ferðinni8), (sem voru bara tveir dagar).

 

 



Nú er ég komin heim og búin að hitta Írisi;). Í dag svaf ég svolítið lengi:$ en hverjum er ekki sama? Ég fór líka aðeins í garðinn með mömmu, borðaði kvöldmat og fór svo í tölvuna að blogga. En nú hef ég ekkert meira að segja þannig að bara blessss!!

 

 



Valdís:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.07.2006 11:44:34 / Valdís

kjellan í Gosso

Kjellan í Þýskalandi:!:

 

 



Jæja það er kominn tími til að blogga aðeins. Það var bara gaman á Ítalíu. Við fórum á ströndina, í skemmtigarð og vatnsleikja garð:haha:bara gaman. Við gerðum nú eiginlega ekkert annað þar en að sleikja sólina. En allavega. Ég kom heim í ca. Tvær vikur og nú er ég komin til Þýskalands til Elfu8)mamma og pabbi voru komin því þau voru að fara á Rolling Stones með Ingu, Hregga og Elfu.

Þannig að ég og Valur fórum til Þýskalands með Einari:haha:. GG stuð. En núna eru mamma og pabbi farin aftur heim og ég er bara hér með Ingu og Val, náttúruleg líka með Elfu og Einar því við gistum heima hjá þeim;). Hér erum við búin að vera  í þvílíkum hita og sól8)8), bara á ströndinni og í schwbadinu:lol:, en í gær kom rigning:S. Í dag ætlum við kannski í dýragarðinn í Frankfurt. Svo fer bara að styttast í að ég komi heim, ekki á morgun heldur hinn, sem sagt 25. júlí. En ég gleymdi næstu að hann Valur er orðinn þrettán ára;), það var haldin svaka veisla hér það komu 2 gestir en það voru Lúkas litli og Eivor mamma hans;).

Meira hef ég ekki að segja.

Tjuus Valdís:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 18:40:10 / Valdís

NÝTT BLOGG

NÝTT BLOGG

 

 



JÆJA ÞAÐ ER KOMIÐ AÐ ÞVÍ AÐ BLOGGA AFTUR!!

ÞAÐ ER ORÐIÐ FREKAR LANGT SÍÐAN ÉG SKRIFAÐI SÍÐAST EN VONANDI BARA ALLT Í LAGI. ÞAÐ ER BÚIÐ AÐ VERA MIKIÐ AÐ GERA HJÁ MÉR Í ÖLLU EN SEM BETUR FER ER ÉG KOMIN Í SUMARFRÍ:D Í SKÓLANUM GEKK MÉR BARA ÁGÆTLEGA:D HANDBOLTINN ER LÍKA BÚINN:) ÉG ER BÚIN AÐ FARA Í EINA ÚTILEGU, VIÐ FÓRUM Í HRÍFUNES MEÐ GUNNA OG CO. ÞAÐ VAR MJÖG GAMAN. SÍÐAN ER ÉG BARA BÚIN AÐ VERA EITTHVAÐ AÐ LEIKA VIÐ ÍRISI:D EN Á FIMMTUDAGINN (15.JÚNÍ) SAGÐI MAMMA MÉR AÐ VIÐ VÆRUM AÐ FARA TIL RIMIN 21.JÚNÍ. ÉG ER NÚNA BARA AÐ BÍÐA EFTIR ÞVÍ , Á MORGUN ÆTLA ÉG SVO AÐ PAKKA. Í DAG ERU NEFLILEGA 2 DAGAR ÞANGAÐ TIL AÐ ÉG FER:D EN NÚNA NENNI ÉG EKKI AÐ SKRIFA MEIRA!

 

 



VALDÍS

 

 




» 0 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 21:00:14 / Valdís

TAP!

Stórt tap:!::cry:

 

 



Ohhh við töpuðum á móti Fylki:cry:. Ég veit ekki hvað staðan var við nenntum ekki að telja það:$. Þetta er bara það eina sem ég vildi segja. Og ef þið hafið keppt við Fylkir endilega comentið.

Kv.Valdís


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.03.2006 18:54:51 / Valdís

STÓRA BLOGGIÐ

Jæja þá er stóra bloggið komið8)

En þá get ég sagt ykkur meira:!:

T.d. ég fór til Akureyrar að keppa:Den nei nei við vorum skráðar sem eitthvað gestalið þannig að við hefðum ekki fengið neitt þótt við værum í 1. sæti :evil::evil:

En það er ekki allt. Mamma átti 40 ára afmæli í byrjun febrúar en hún fékk ferð til Köben (Kaupmannahöfn) frá pabba á afmælisdaginn, fór sko út þá. Á meðan var ég hjá Ingu frænku:haha: Það var bara mjög gaman eins og alltaf. Frá mömmu og pabba fékk ég Puma skó, Puma tösku til að vera með í skólanum, Puma bol og nammi;). Þau komu svo heim, voru í viku og fóru svo með mér til Austurríkis. Þar vorum við í viku og hittum Viktor brósa úti:haha::haha:það var mjög gaman þar og auðvitað að hitta brósa;). Þegar við komum heim fór ég í viku í skólann svo kom bara vetrafrí:) En það var samt gaman að fara aftur í skólann en Íris besta vinkona mín var veik alla vikuna nema tvo daga:cry:. Í vetrafríinu var ég bara að leika við Írisi, við vorum bara að leika8)

Öskudagur var í fyrradag eða á miðvikudaginn. Við Íris vorum saman og vorum baby báðar:haha: Í gær fórum við í skólann og vorum bara frá 08:50 til 13:00, það er alltaf þannig á fimmtudögum;) En í dag var ég bara að leika við Írisi hérna heima. Það var fínt. Um helgina á bara að taka því rólega með familíunni en reyndar er ég að fara að keppa æfingarleik við Fylkir. Við ætlum að RÚSTA þeim:haha::haha: Seinasta laugardag kepptum við æfingarleik við Víking og unnum þær, þær viðurkenndu það meira að segja8)En ég er bara búin að skrifa of mikið núna held ég bara, ég er allavega alveg búin að skrifa nóg!

 

 



Kv. Valdís:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 20:51:01 / Valdís

Nýtt blogg á leiðinni!

 

 



Nýtt blogg á leiðinni :!:

Það er orðið svolítið langt síðan ég skrifaðði síðast en það er nýtt blogg á leiðinni ég er byrjuð á að skrifa það en það er bara svo langt að það þarf að gera það í tveimur hlutum:$

 

 



Kv. Valdís :haha:

 

 



Ps. Kjósa í nýju skoðanakönnuninni 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.01.2006 22:08:27 / Valdís

Nýtt ááááár!!

Jæja það er kannski svolítið langt síðan ég skrifaði:$

En allavega það er komið nýtt ár;):haha: og jólin allveg að vera búin:(

Hér kemur smá listi um það hvað ég fékk í jólagjöf:D

 

v      Mamma og pabbi = Brettahjálmur og skíðaferð til Austurríkis:D

v      Brósi = brettaboki :D

v      Amma og afi í Beyki = úlpa og sjóbuxur.

v      Amma og afi í Laugarnesi = pils og bolur.

v      Systir hennar mömmu og fj. = flísnáttsloppur og bók.

v      Bróðir hennar mömmu og fj. = peningabudda, eyrnalokkar og armband.

v      Systir hans pabba og fj. = náttföt.

v      Bróðir hans pabba og fj. = húfa.

v      Íris vinkona = Puma svitaliktasprei og Puma sturtusápa.

 

Þá er það komið. Á jóladag fór ég til ömmu og afa í Laugarnesi eins og alltaf. Annan í jólum vorum við bara hér heima en buðum báðum ömmu og afa hingað og Tedda og Auði. Svo leið að áramótum. Þá vorum við hjá systur mömmu. Það var rosa gaman:D Þegar allir voru hættir að sprengja vorum ég og Valur að leika okkur ein úti, geðveikt stuð hjá okkur. En í gær sem sagt á Nýársdag vorum við bara í rólegheitunum, fórum svo í mat aftur til Ingu frænku. Eftir það fengum ég og Valur að gista saman hjá mér. Við vorum bara að leika okkuru í dag.

Nú er ég búin að segja ansi mikið.

Kv. Valdís:haha:

 

Gleðilegt ný ár!



 



 



 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4